Þór/KA vann fimmta leikinn í röð

Rakel Hönnudóttir gerði tvö mörk í kvöld.
Rakel Hönnudóttir gerði tvö mörk í kvöld. mbl.is/Skapti

Rakel Hönnudóttir gerði bæði mörk Þórs/KA sem vann góðan 2:0 sigur á Breiðabliki á Akureyrarvelli í kvöld í Pepsideild kvenna í knattspyrnu. Mörkin skoraði Rakel bæði á fyrsta hálftíma leiksins.

Seinni hálfleikur var ansi bragðdaufur en næst því að minnka muninn fyrir Blika komst Sandra Sif Magnúsdóttir þegar hún skaut í þverslána um miðjan hálfleikinn.

Þetta var fimmti sigurleikur Þórs/KA í röð og er liðið í fjórða sæti deildarinnar með stigi minna en Breiðablik, Stjarnan og Valur en tvö síðastnefndu liðin eiga leik til góða sem nú stendur yfir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert