Fundað um framtíð Gunnars

Gunnar Oddsson kom Þrótti upp í úrvalsdeild en óvíst er …
Gunnar Oddsson kom Þrótti upp í úrvalsdeild en óvíst er hvort hann mun þjálfa liðið til loka leiktíðarinnar. mbl.is/Árni Sæberg

Samkvæmt heimildum mbl.is stendur nú yfir fundur hjá knattspyrnudeild Þróttar R. um framtíð Gunnars Oddssonar þjálfara meistaraflokks karla hjá félaginu.

Þróttur hefur átt afar slæmt sumar í Pepsídeildinni og er á botninum með aðeins 8 stig eftir 14 leiki og kvaðst Gunnar í samtali við Morgunblaðið eftir 5:1 tap gegn KR í gær vera óviss um hvort hann héldi áfram með liðið.

Ekki næst í stjórnarmenn Þróttar þessa stundina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert