Guðmundur: Fram refsaði okkur

Guðmundur Benediktsson þjálfari Selfyssinga.
Guðmundur Benediktsson þjálfari Selfyssinga. mbl.is/Rax

„Við fengum svo sannarlega fleiri færi í fyrri hálfleik til að bæta við mörkum en því miður tókst það ekki,“ sagði Guðmundur Benediktsson þjálfari Selfyssinga eftir 2:1 tap gegn Fram í Pepsideildinni í kvöld.

Eftir jafnan fyrri hálfleik, þar sem Selfyssingar voru jafnvel ívið sterkari aðilinn, var Fram með yfirhöndina í þeim seinni þar sem sigurmarkið kom á 61. mínútu.

„Fram er með mjög sterkt lið sem refsaði okkur í seinni hálfleik fyrir að vera hreinlega ekki alveg á tánum þó við hefðum farið vel yfir það að Fram væri yfirleitt enn sterkara í seinni hálfleik,“ sagði Guðmundur.

„Ég er að sjálfsögðu mjög vonsvikinn yfir úrslitunum en heilt yfir fannst mér liðið spila ágætlega. Upphafskaflinn í seinni hálfleik gerði útaf við okkur og auðvitað er ég svolítið svekktur með það,“ bætti hann við.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert