Tryggvi kominn með grímu

Tryggvi Guðmundsson með grímuna í Eyjum í gær.
Tryggvi Guðmundsson með grímuna í Eyjum í gær. mbl.is/Sigfús Gunnar

Eyjamaðurinn Tryggvi Guðmundsson ætlar ekki láta kinnbeinsbrot aftra sér frá því að spila fótbolta. Tryggvi þríbrotnaði í andlitinu í leiknum á móti Keflavík í Pepsi-deildinni um síðustu helgi og reiknað var með því að hann yrði ekki með í næstu leikjum ÍBV-liðsins.

Tryggvi er búinn að útvega sér andlitsgrímu, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, sem hann mun bera í næsta leik, en sóknarmaðurinn skæði skoraði fyrra mark Eyjamanna í leiknum við Keflvíkinga og færist hægt og bítandi nær markametinu sem Ingi Björn Albertsson á. Ingi skoraði 126 mörk í efstu deild en Tryggvi er kominn í 118 mörk.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert