40 síðna fótboltablað Morgunblaðsins í dag

Atli Viðar Björnsson úr FH og Bjarni Guðjónsson úr KR …
Atli Viðar Björnsson úr FH og Bjarni Guðjónsson úr KR verða í toppbaráttunni í sumar ef marka má spár. mbl.is/Eggert

Keppni í Pepsi-deild karla í knattspyrnu hefst á sunnudaginn og í dag fylgir Morgunblaðinu 40 síðna sérblað um deildina en þar er fjallað ítarlega um keppnistímabilið sem framundan er og liðin tólf eru kynnt rækilega.

Í blaðinu eru viðtöl við leikmenn eða þjálfara frá öllum tólf liðunum. Ólafur Jóhannesson fyrrum landsliðsþjálfari er sérfræðingur blaðsins og segir sitt álit á liðunum og við hverju má búast af þeim.

Fjallað er um dómarana, þjálfarana og nýja leikmenn, og birtar eru spár um sumarið. Þá er leikjadagskrá sumarsins í blaðinu ásamt allskyns fróðleik um Íslandsmótið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert