Egill lánaður til Selfyssinga

Egill Jónsson, lengst til vinstri, er kominn til liðs við …
Egill Jónsson, lengst til vinstri, er kominn til liðs við Selfyssinga. mbl.is/Ómar

Selfyssingar hafa fengið miðjumanninn Egil Jónsson lánaðan frá Íslands- og bikarmeisturum KR og hann spilar með þeim í Pepsi-deildinni út þetta tímabil.

Egill er kominn með leikheimild og getur því spilað með Selfyssingum þegar þeir taka á móti Valsmönnum í kvöld.

Egill er 21 árs og hefur komið við sögu í sjö leikjum KR-inga í deildinni í ár, og var í byrjunarliði í fyrsta sinn í síðasta leik, gegn Stjörnunni. Hann á alls að baki 25 leiki með Vesturbæjarliðinu í efstu deild.

Selfoss hefur einnig fengið lánaðan Hafþór Þrastarson, varnarmann úr FH, og hann getur líka spilað gegn Val í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert