Arnar Már til Ólafsvíkinga

Arnar Már Björgvinsson í leik með Breiðabliki.
Arnar Már Björgvinsson í leik með Breiðabliki. mbl.is/Ómar

Víkingar í Ólafsvík, nýliðarnir í Pepsi-deild karla í knattspyrnu, hafa fengið sóknarmanninn Arnar Má Björgvinsson lánaðan frá Breiðabliki.

Arnar Már, sem er 23 ára gamall, hefur verið í röðum Breiðabliks undanfarin tvö ár og skorað 5 mörk í 28 leikjum með Kópavogsliðinu í deildinni. Áður lék hann með Stjörnunni og skoraði þar 11 mörk í 27 leikjum í efstu deild. Þar af gerði hann 9 mörk í 15 leikjum sumarið 2009.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert