Belgi til reynslu hjá FH-ingum

Heimir Guðjónsson þjálfar FH.
Heimir Guðjónsson þjálfar FH. mbl.is/Ómar

Belgíski knattspyrnumaðurinn Jonathan Hendrickx er kominn til reynslu hjá FH-ingum og verður þar næstu daga en þetta staðfestir Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar FH við fótbolta.net.

Hann er 21 árs gamall, leikur sem hægri bakvörður og hefur spilað með hollenska B-deildarliðinu Fortuna Sittard undanfarin tvö ár.

Guðjón Árni Antoníusson er úr leik hjá FH vegna meiðsla en hann hóf tímabilið sem hægri bakvörður. Jón Ragnar Jónsson og Sean Reynolds hafa leikið í þeirri stöðu hjá liðnu að undanförnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert