Siggi Raggi: Gullskórinn markmið Glenn

„Þetta var virkilega ljúft og þessi sigur hífir okkur aðeins upp töfluna. Við höfum spilað vel undanfarið og frábært að skora fjögur mörk í dag,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari ÍBV eftir 4:2-sigur hans manna á Fjölni í 11. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í dag.

Bandaríski framherjinn Jonathan Glenn skoraði tvö af fjórum mörkum ÍBV í leiknum og er nú orðinn markahæsti leikmaður deildarinnar með 6 mörk, eins og Daninn Jeppe Hansen sem var hjá Stjörnunni.

„Það er markmiðið hjá Glenn að verða markahæstur í Pepsí-deildinni og hann hefur alla burði til þess. Mér finnst hann frábær framherji,“ sagði Sigurður Ragnar eftir leikinn í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert