Sigrún Ella: Gæti ekki beðið um meira

Sigrún Ella Einarsdóttir kom til Stjörnunnar frá FH síðasta vetur og á sínu fyrsta tímabili í Garðabænum varð hún bikarmeistari og Íslandsmeistari og vann sér inn sæti í íslenska landsliðinu í knattspyrnu.

„Þetta er æðisleg tilfinning. Við höfum unnið fyrir þessu allt árið og uppskerum núna eins og við sáðum,“ sagði Sigrún Ella eftir að Íslandsmeistaratitillinn var í höfn í kvöld.

„Þetta er búið að vera frábært ár bæði fyrir mig og Stjörnuna, ég gæti ekki beðið um það betra,“ sagði Sigrún Ella. Nánar er rætt við hana í meðfylgjandi myndbandi.

Stjarnan fagnar Íslandsmeistaratitlinum í kvöld.
Stjarnan fagnar Íslandsmeistaratitlinum í kvöld. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert