Jeffs tekur við kvennaliði ÍBV

Ian Jeffs, til vinstri.
Ian Jeffs, til vinstri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ian Jeffs mun taka við þjálfun kvennaliðs ÍBV í knattspyrnu fyrir næsta tímabil og mun taka við hlutverki Jóns Óla Daníelssonar.

Jón Ólafur staðfesti þetta í samtali við fotbolti.net en hann hefur stýrt Eyjaliðinu undanfarin átta ár. Jón Ólafur mun verða Jeffs til trausts og halds sem aðstoðarmaður en Jeffs verður áfram leikmaður ÍBV á næsta keppnistímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert