Ásmundur: Hefði viljað skora meira

Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis, var að vonum ánægður með sigurinn á Fjölni í Lautinni í dag. Stigin þrjú gera það enda að verkum að Fylkir á enn möguleika á að ná fjórða sæti Pepsi-deildarinnar og þar með Evrópusæti.

Ásmundur sagðist ánægður með hvernig leikurinn spilaðist en hefði viljað að liðið skoraði meira, enda einum manni fleiri allan síðari hálfleikinn. Þá hefði hann verið rólegri á lokamínútunum þegar Fjölnismenn reyndu hvað þeir gátu að jafna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka