Snævi þaktir vellir á höfuðborgarsvæðinu

Fjölnisvöllur þakinn snjó í kvöld. Þar mætast Fjölnir og ÍBV …
Fjölnisvöllur þakinn snjó í kvöld. Þar mætast Fjölnir og ÍBV á morgun. Ljósmynd/Eva Björk

Í kvöld fór að snjóa á höfuðborgarsvæðinu í fyrsta sinn á þessu hausti og fótboltavellirnir þar sem fram fara leikir í lokaumferð Íslandsmótsins á morgun eru fagurhvítir ásýndum.

Eva Björk Ægisdóttir ljósmyndari var á ferð framhjá Fjölnisvellinum rétt áðan og tók meðfylgjandi mynd.

Samkvæmt veðurspá eru þó hverfandi líkur á að snjórinn verði til trafala á morgun þegar leikirnir fara fram því miðað við spá og hitatölur næsta sólarhringinn verður hann bráðnaður í fyrramálið. 

Spáð er 5-6 stiga hita um miðjan daginn á meðan leikirnir fara fram en hætt er við að vellirnir verði ansi blautir, bæði eftir rigningarnar undanfarið og svo snjóinn í kvöld, auk þess sem eitthvað rignir væntanlega á morgun.

Hafnarfjörður virðist hafa sloppið við snjókomuna því samkvæmt upplýsingum mbl.is sást ekki snjókorn á Kaplakrikavelli áðan en þar fer úrslitaleikur FH og Stjörnunnar fram síðdegis á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert