Dýrmæt baráttustig

„Þetta voru þrjú dýrmæt baráttustig,“ sagði Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks eftir 1:0 sigur á Stjörnunni í Garðabænum í Pepsi deild karla í knattspyrnu í kvöld.

„Stjarnan lék mjög vel í kvöld og þetta var erfiður leikur. Mér fannst við líka leika vel og við náðum að skapa okkur nokkur ágæt færi sem nýttust þó ekki, en þeir sköpuðu sér ekki nein teljandi færi.

Ég er að mestu ánægður með leik okkar. Stjarnan var kannski heldur meira með boltann í fyrri hálfleiknum án þess þó að ná að skapa sér færi, en við hefðum átt að klára þennan leik með fleiri mörkum,“ agði Arnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert