Bjarni og Gummi áfram í Frostaskjólinu

Bjarni Guðjónsson og Guðmundur Benediktsson með Kristinn Kjærnested formann knattspyrnudeildar …
Bjarni Guðjónsson og Guðmundur Benediktsson með Kristinn Kjærnested formann knattspyrnudeildar KR á milli sín. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sama þjálfarateymi mun verða við stjórnvölinn hjá KR-ingum á næstu leiktíð en Kristinn Kjærnested formaður knattspyrnudeildar KR greinir frá þessu í viðtali á fótbolti.net.

Bjarni Guðjónsson mun halda áfram sem þjálfari liðsins og með honum í brúnni verða áfram Guðmundur Benediktsson og Henrik Bödker.

„Eins og gengur og gerist þá setjast menn niður og fara yfir sviðið. Það eru uppsagnarákvæði á báða vegu á samningum í dag en við vinnum út frá því sem er í gangi,“ sagði Kristinn um þjálfaramálin í samtali við fótbolti.net.

KR-ingar enduðu í þriðja sæti í Pepsí-deildinni á nýafstöðnu á fyrsta tímabilinu undir stjórn Bjarna Guðjónssonar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert