Rólegur göngutúr

„Þetta var svona eins og rólegur göngutúr (walk in the Park),“ sagði Ágúst Þór Gylfason, þjálfari Fjölnis eftir 2:0 tap í Kaplakrika í kvöld í 4. umverð Pepsi deildar karla í knattspyrnu.

„Sigur FH var sanngjarn og við þurfum ekkert að skammast okkar fyrir að koma á heimavöll Íslandsmeistaranna og tapa þar, en ég hefði viljað sjá liðið mitt spila betur,“ sagði Ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka