ÍBV vann öruggan 2:0 sigur á FH í Pepsi deild kvenna en leikið var á Hásteinsvelli. Cloe Lacasse skoraði fyrsta mark leiksins strax á 2.mínútu leiksins en þá lék hún upp völlinn og setti hann á nærstöngina. Þannig var staðan í hálfleik.
ÍBV fékk svo víti á 57.mínútu sem Cloe fiskaði. Sigríður Lára fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi. Sigur Eyjakvenna virkilega sannfærandi og aldrei í hættu.
ÍBV | 2:0 | FH | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. ÍBV fær hornspyrnu | ||||
Augnablik — sæki gögn... |