Guðmann Þórisson, miðvörðurinn öflugi sem hefur spilað með KA í sumar sem lánsmaður frá FH, er genginn í raðir Akureyrarliðsins og hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Guðmann gekk í raðir KA fyrir tímabilið og hann átti góðu gengi að fagna með liðinu, sem vann sigur í Inkasso-deildinni og leikur í Pepsi-deildinni næsta sumar, en KA hefur ekki leikið í deild þeirra bestu frá árinu 2004.