FH fær bandarískan markvörð

Lindsey Harris hefur leikið í bandaríska háskólaboltanum síðustu ár.
Lindsey Harris hefur leikið í bandaríska háskólaboltanum síðustu ár. Ljósmynd/fh.is

FH hefur fengið til sín bandaríska markvörðinn Lindsey Harris og kemur hún til með að verja mark liðsins í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu á næstu leiktíð.

Harris er 23 ára gömul og kemur beint úr bandaríska háskólaboltanum þar sem hún hefur spilað með sterku liði University of North Carolina. Þá hefur hún æft með U23-liði Bandaríkjanna.

FH endaði í 6. sæti á síðustu leiktíð en þá varði Jeannette Williams mark liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert