Aron Einar ekki í hópnum

Aron Einar Gunnarsson er ekki í 23 manna hópi Íslands …
Aron Einar Gunnarsson er ekki í 23 manna hópi Íslands fyrir leikinn gegn Portúgal. mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnumaðurinn Aron Einar Gunnarsson er ekki í leikmannahópi Íslands fyrir leikinn gegn Portúgal í undan­keppni EM 2024 í kvöld.

Aron kom inn á sem varamaður í 4:2 tapi gegn Slóvakíu í síðasta leik og spilaði sinn 103. landsleik en hann lék síðast fyr­ir fé­lagslið sitt Al-Ar­abi í maí síðastliðnum. 

Þeir Daníel Leó Grétarsson og Andri Fannar Baldursson eru báðir á leikskýrslu UEFA fyrir leikinn sem var birt í morgun en en þeim var bætt við hópinn á föstudaginn. Þeir koma þá í stað Arons og Hákons Arnars Haraldssonar sem þurfti að draga sig út úr hópnum vegna meiðsla

Ísland mætir Portúgal klukkan 19:45 í kvöld í Lissabon í Portúgal.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert