Terry klár í slaginn gegn Spánverjum

John Terry gerir sig kláran til að koma inná í …
John Terry gerir sig kláran til að koma inná í leiknum gegn Charlton í gær. Reuters

Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir að John Terry sé klár í slaginn með enska landsliðinu og ekkert því til fyrirstöðu að hann leiði sína menn út á völlinn gegn Spánverjum á Old Trafford á miðvikudaginn. Terry lék síðustu 5 mínúturnar fyri Chelsea gegn Charlton í gær eftir að hafa misst af síðustu 13 leikjum liðsins vegna meiðsla.

,,Ég vona að Terry spila hluta af leiknum gegn Spánverjum og kom svo til okkar klár í baráttuna á móti Middlesbrough um næstu helgi. Hann er klár í slaginn og þess vegna lék hann síðustu mínúturnar á móti Charlton," segir Mourinho.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert