Lille ætlar að áfrýja úrskurði UEFA

Leikmenn Lille mótmæla markinu sem Ryan Giggs skoraði.
Leikmenn Lille mótmæla markinu sem Ryan Giggs skoraði. AP

Forráðamenn franska liðsins Lille hafa ákveðið að áfrýja úrskurði UEFA sem vísaði frá kröfu þeirra um að markið sem Ryan Giggs skoraði gegn Lille í Meistaradeildinni í síðustu viku hafi verið ólöglegt. UEFA mun taka málið til skoðunar á föstudaginn en í dag ákærði UEFA Lille fyrir óprúðmannlega framkomu í umræddum leik en í kjölfar marksins sem Giggs skoraði gengu nokkrir leikmenn liðsina út af vellinum í mótmælaskyni.

Síðari leikur Manchester United og Lille í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar fer fram á Old Trafford miðvikudaginn 7. mars.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert