Drottningin heiðraði Steven Gerrard

Steven Gerrard ásamt unnustu sinni, Alex Curran, og með orðuna …
Steven Gerrard ásamt unnustu sinni, Alex Curran, og með orðuna dýrmætu. Reuters

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool og leikmaður enska landsliðsins, gekk í dag á fund Elísabetar Englandsdrottningar í Buckingham-höll og hún sæmdi hann heiðursorðu Breska heimsveldisins, MBE-orðunni, vegna frábærrar frammistöðu á knattspyrnuvellinum.

„Ég hef spilað stórleiki með frábærum leikmönnum en hef aldrei upplifað neitt þessu líkt," sagði Gerrard og hafði á orði að þetta væri enn stærra í sínum augum en bikarúrslitaleikur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert