Beckenbauer staðfestir vistaskipti Hargreaves

Owen Hargreaves er loksins á leiðinni til Manchester United eftir …
Owen Hargreaves er loksins á leiðinni til Manchester United eftir langan aðdraganda. Reuters

Franz Beckenbauer, forseti þýska knattspyrnufélagsins Bayern München, staðfesti í dag að enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves væri á leið frá félaginu til Manchester United. Í gær skýrði vefur þýska tímaritsins Der Spiegel frá því að Hargreaves yrði seldur til ensku meistaranna fyrir 17 milljónir punda, rúmlega 2,1 milljarða íslenskra króna.

„Owen er á förum, samkvæmt eigin ósk. Þetta er góð lausn og um leið góð viðskipti," sagði Beckenbauer við þýska sjónvarpið DSF í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert