Benítez vill fá Torres til Liverpool

Fernando Torres er nú orðaður við Liverpool.
Fernando Torres er nú orðaður við Liverpool. Reuters

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool hefur mikinn áhuga á að fá spænska framherjann Fernando Torres frá Atletico Madrid til liðs við sig. Að því er fram kemur í breska blaðinu Liverpool Echo í dag er Torres efstur á óskalista Benítez en leikmaðurin er metinn á 25 milljónir punda, 3,1 milljarð króna.

Forráðamenn Atletico Madrid eru sagðir reiðubúnir að láta Torres fara og ræður það mestu um að félaginu tókst ekki að vinna sér sæti í Evrópukeppninni á næstu leiktíð. Torres skoraði 14 mörk fyrir Madridarliðið á síðustu leiktíð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert