Voronin með tvö mörk í sigri Liverpool

Fernando Torres í baráttunni með Liverpool gegn Werder Bremen í kvöld.

Fernando Torres í baráttunni með Liverpool gegn Werder Bremen í kvöld. Reuters

Liverpool sigraði þýska liðið Werder Bremen, 3:2, í æfingaleik sem háður var í Sviss í kvöld. Úkraínski framherjinn Andriy Voronin skoraði tvö marka Liverpool, og hefur þar með skorað þrjú mörk í tveimur fyrstu leikjum sínum með liðinu, og John Arne Riise skoraði eitt.

Spánverjinn Fernando Torres, Hollendingurinn Ryan Babel og Ísraelsmaðurinn Yossi Benayoun léku allir sinn fyrsta leik fyrir Liverpool en allir komu þeir inná í síðari hálfleik.

Torres kom inná fyrir Voronin á 63. mínútu og var tvívegis nálægt því að skora en Spánverjinn var keyptur fyrir metfé í síðasta mánuði og er mikils vænst af honum af stuðningsmönnum Liverpool.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar


finnur.is