Fabregas stendur sig best - Hermann í 30. sæti

Cesc Fabregas hefur farið á kostum með liði Arsenal á …
Cesc Fabregas hefur farið á kostum með liði Arsenal á leiktíðinni. Reuters

Cesc Fabregas miðjumaðurinn snjalli hjá Arsenal hefur staðið sig best allra leikmanna í ensku úrvalsdeildinni það sem af er keppnistímabilinu samkvæmt útreikningum Actim, sem heldur utan um frammistöðu allra leikmanna í deildinni og reiknar út einkunnir þeirra fyrir hina ýmsu þætti eftir hvern leik. Hermann Hreiðarsson er í 30. sæti á listanum en hann hefur staðið sig sérlega vel með liði Portsmouth á leiktíðinni.

Leikmennirnir í 10 efstu sætunum eru:
Francesc Fabregas, Arsenal 223
Benjani Mwaruwari, Portsmouth 214
Blumer Elano, Man City 211
Rio Ferdinand, Man Utd 190
Martin Petrov, Man City 174
Emmanuel Adebayor Arsenal 169
Charles N’Zogbia, Newcastle 156
Robin Van Persie, Arsenal 154
Gael Clichy, Arsenal 154
John Utaka, Portsmouth 152
Hermann Hreiðarsson, Portsmouth 133

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert