Mascherano vonast eftir samningi við Liverpool

Javier Mascherano.
Javier Mascherano. Reuters

Argentínumaðurinn Javier Mascherano, sem hefur verið í láni hjá Liverpool í vetur, vonast til að á næstu dögum eða vikum verði endanlega gengið frá samningi milli hans og Liverpool.

„Við erum að nálgast samkomulag, kannski getum við sagt frá því í þessari viku eða þeirri næstu að allt sé klappað og klárt. Í rauninni á bara eftir að ganga frá pappírunum og skrifa undir.

Ég hef alltaf sagt að ég vildi vera hér áfram og spila fyrir Liverpool. Það verður besta stund ferils míns þegar ég skrifa undir samning við Liverpool,“  segir Mascherano á heimasíðu félagsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert