Benítez: Frábær frammistaða

Martin Skrtel rennir sér fótskriðu og reynir að stöðva Ricardo …
Martin Skrtel rennir sér fótskriðu og reynir að stöðva Ricardo Gardner í leik Bolton og Liverpool í dag. Reuters

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool var afar ánægður með leik sinna manna á Reebok vellinum í Bolton í dag þar sem Liverpool vann öruggan og sanngjarnan sigur, 3:1.

„Þetta var góður leikur og frábær frammistaða hjá lið mínu. Leikmenn lögðu sig virkilega fram, við lékum boltanum vel á milli okkar og sköpuðum okkur fín færi. Svo ég get ekki verið annað en ánægður,“ sagði Benítez.

„Mér fannst við spila vel í byrjun en markið sem Gerrard tók töluvert vindinn úr seglum okkar. Við þurftum að breyta okkar leikskipulagi eftir markið og reyndum að sækja á þá en hlutirnir gengu einfaldlega ekki upp hjá okkur,“ sagði Gary Megson knattspyrnustjóri Bolton.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert