Vidic og Nani klárir í slaginn

Nemanja Vidic kemur inn í liði Manchester United gegn Blackburn …
Nemanja Vidic kemur inn í liði Manchester United gegn Blackburn á morgun. Hér á hann í höggi við Yakubu, framherja Everton. Reuters

Serbneski varnamaðurinn Nemanja Vidic hefur jafnað sig af meiðslum og er klár í slaginn með Manchester United á morgun þegar liðið sækir Blackburn heim á Ewood Park. Vidic meiddist í Evrópuleiknum gegn Roma og hefur verið fjarverandi í síðustu þremur leikjum liðsins.

Þá er Portúgalinn Nani búinn að ná sér af meiðslum og hann verður í leikmannahópi meistaranna gegn Blackburn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert