Alex Ferguson: Erum verðskuldað í úrslitum

Alex Ferguson fagnar gríðarlega eftir sigur sinna manna á Barcelona …
Alex Ferguson fagnar gríðarlega eftir sigur sinna manna á Barcelona í kvöld. Reuters

Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United sagði eftir sigurinn á Barcelona í kvöld að lið sitt væri verðskuldað komið í úrslitaleikinn í Moskvu þann 21. maí.

„Þetta er frábær tilfinning og það er enginn vafi í mínum huga að félagið verðskuldar að vera komið í úrslitin. Við fengum frábæran stuðning hjá okkar stuðningsmönnum og þeir hjálpuðu okkur mikið í þessum leik,“ sagði Sir Alex eftir leikinn.

Spurður hvort Scholes verði fyrstur maðurinn sem hann skrifar á leikskýrsluna í úrslitaleiknum sagði Ferguson: „Að sjálfsögðu,“ en Scholes tók út leikbann þegar United varð Evrópumeistari fyrir níu árum.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert