Benítez: Stoltur af mínu liði

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool.
Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool. Reuters

Rafael Benítez knattspyrnustjóri knattspyrnustjóri Liverpool var að vonum daufur í dálkinn eftir fall sinna manna í Meistaradeildinni í kvöld. Hann sagði eftir leikinn að hann væri þrátt fyrir allt stoltur af sínu liði.

„Við fengum góð færi sem við nýttum ekki og það varð okkur að falli. Við lékum ekki vel í fyrri hálfleik en í þeim síðari og framan af framlengingunni vorum við betra liðið. En við náðum því miður ekki að halda þetta út og mörkin tvö sem þeir skoruðu í framlengingunni gerðu út af við okkur,“ sagði Benítez sem mistókst að koma liði sínu í úrslit í þriðja sinn á síðustu fjórum árum. Hann bætti við; „Chelsea lék vel og ég óska liðinu góðs gengis.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert