Adebayor: Ég er ekki á förum

Emmanuel Adebayor hefur nóg að gera við að vísa fréttum …
Emmanuel Adebayor hefur nóg að gera við að vísa fréttum um sig á bug. Reuters

Emmanuel Adebayor, sóknarmaðurinn öflugi hjá Arsenal, segir að það sé ekkert hæft í fréttum sem birst hafa síðustu daga um að hann hafi hug á að yfirgefa enska félagið í sumar.

Adebayor vísaði slíkum fréttum á bug í síðustu viku en í dag kom frétt í hinu kunna franska íþróttadagblaði L'Equipe þar sem haft var eftir kappanum að sér fyndist mikill heiður að vera orðaður við Barcelona og AC Milan.

„Ég skil ekki hvers vegna menn eru að leggja mér orð í munn. Eins og ég sagði síðasta föstudag þá elska ég Arsenal og verð hér áfram á næsta tímabili. Ég fer heim til Tógó á morgun en mæti aftur til æfinga með Arsenal í júlí," sagði Adebayor á vef enska félagsins í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert