Hull City mætir Bristol City í úrslitaleik

Hull City vann stórsigur á Watford, 4:1, í síðari viðureign liðanna í undanúrslitum umspilsins um sæti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld og sigraði 6:1 samanlagt.

Það verður því Hull sem mætir Bristol City í úrslitaleik um úrvalsdeildarsætið á Wembley síðar í þessum mánuði.

Darius Henderson kom Watford yfir á 12. mínútu og gaf því Watford aukna von en Nick Barmby jafnaði fyrir Hull á 43. mínútu við gífurleg fagnaðarlæti heimamanna, 1:1 í hálfleik.

Caleb Folan kom Hull yfir í seinni hálfleiknum, 2:1 og 4:1 samanlagt. Undir lokin bættu svo Richard Garcia  og Nathan Doyle við mörkum og liðið frá hafnarborginni kunnu gæti nú komist uppí úrvalsdeildina í fyrsta skipti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert