„Látum ekkert valta yfir okkur“

Setur Tryggvi mark gegn Aston Villa?
Setur Tryggvi mark gegn Aston Villa? Haraldur Guðjónsson

„Þó þarna sé stórlið á ferðinni ætlum við ekki að láta valta neitt yfir okkur,“ segir Heimir Guðjónsson, þjálfari FH sem dróst gegn enska úrvalsdeildarfélaginu Aston Villa í 2. umferð forkeppni UEFA-bikarnum.

Heimir viðurkenndi möguleika síns liðs kannski ekki ýkja mikla en þarna væri kærkomið tækifæri til að reyna sig við öflugan andstæðing. „Það er oft á slíkum stundum sem menn sýna sitt rétta andlit og vonandi að það gerist nú. Fyrst og fremst er þetta þó skemmtilegt tækifæri og upplifun enda Aston Villa sterkir og Martin O´Neill að gera þar skemmtilega hluti með liðið.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert