Benítez: Það eina jákvæða var að við héldum markinu hreinu

Rafael Benítez gefur sínum mönnum skipanir í kvöld.
Rafael Benítez gefur sínum mönnum skipanir í kvöld. Reuters

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool var ekki ánægður með leik sinna manna gegn belgíska liðinu Standard Liege í kvöld en markalaust jafntefli var niðurstaðan og máttu liðsmenn teljast Liverpool teljast heppnir að ná jafntefli.

„Góð frammistaða Standard Liege kom okkur ekki á óvart. Við höfðum séð nóg til að vita að þeir eru með mjög gott lið. Það eina sem kom mér á óvart var hvernig lið Liverpool spilaði. Það eina jákvæða sem við getum tekið út úr þessum leik er að við héldum marki okkar hreinu, þökk sé Pepe Reina. Við þurfum að gera miklu betur í seinni leiknum á Anfield,“ sagði Benítez.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert