Redknapp hellir sér yfir Capello

Fúll á móti. Redknapp vandar Capello ekki kveðjurnar.
Fúll á móti. Redknapp vandar Capello ekki kveðjurnar. Reuters

Stjóri Portsmouth, hinn sigursæli Harry Redknapp, hellir sér yfir leikskipulag Fabio Capello í leik Englands og Tékklands sem endaði 2:2. Segir hann leikinn einn þann versta sem enskir hafa spilað.

„Hvað á að segja um þetta? Síðari hálfleikurinn djöfullega lélegur og enginn leikmannanna sýndi nokkuð af þeirri snilli sem þeir sýna hverja einustu viku í deildinni.“

Þá skaut Redknapp föstum skotum á Capello fyrir að spila Steven Gerrard á kantinum. „Gerrard getur allt sem þarf að gera en til þess verður að hafa hann á miðjunni. Með ólíkindum að hafa hann annars staðar.“ 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert