Íslendingaliðunum vegnaði illa

Aron Einar Gunnarsson og félagar í Coventry töpuðu.
Aron Einar Gunnarsson og félagar í Coventry töpuðu. mbl.is/Golli

Fjögur Íslendingalið voru á ferðinni í ensku knattspyrnunni í dag og vegnaði illa. Þrjú þeirra töpuðu og eitt náði jafntefli.

Grétar Rafn Steinsson lék allan leikinn með Bolton sem tapaði, 1:0, fyrir Newcastle í úrvalsdeildinni. Bolton er með 3 stig eftir 2 umferðir.

Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Coventry sem steinlá heima, 0:3, gegn Bristol City í 1. deild. Coventry hafði unnið tvo fyrstu leiki sína og er með 6 stig eftir 3 umferðir.

Ívar Ingimarsson lék allan leikinn með Reading sem tapaði, 4:2, fyrir Charlton á útivelli. Reading er með 4 stig eftir 3 leiki. Brynjar Björn Gunnarsson er frá vegna meiðsla og Gylfi Þór Sigurðsson var ekki í leikmannahópi Reading.

Jóhannes Karl Guðjónsson kom inná sem varamaður hjá Burnley korteri fyrir leikslok þegar liðið gerði 0:0 jafntefli við Crystal Palace á útivelli. Þetta var fyrsta stig Burnley sem er næstneðst í 1. deild með eitt stig.

Portsmouth, lið Hermanns Hreiðarssonar, tekur á móti Manchester United í úrvalsdeildinni á mánudagskvöldið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka