Vidic ósáttur í Englandi

Vidic skilur ekki Englendinga.
Vidic skilur ekki Englendinga. Reuters

Serbneska varnarkempan Nemanja Vidic hjá Manchester United segir engar líkur á að hann verði lengi á mála hjá liðinu.

Það er ekki félagslið sitt sem Vidic er svo ósáttur með heldur England og Englendingar og vandar hann heimafólki ekki kveðjurnar. „Þið kunnið ekki að njóta lífsins. Allir vinna baki brotnu, tala ekki saman nema í matartímum og fara svo beint heim og glápa á sjónvarpið öll kvöld. Svo rignir hérna endalaust.“

Sagðist Vidic dreyma um að spila á Spáni fyrr en síðar.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka