Obinna til Everton

Silfurverðlaunahafi líka. Obinna fagnar á Ólympíuleikunum en þar varð Nígeríu …
Silfurverðlaunahafi líka. Obinna fagnar á Ólympíuleikunum en þar varð Nígeríu í 2. sæti. Reuters

Loks birtir til hjá Everton. Hafa þeir fengið að láni út tímabilið hinn nígeríska Viktor Obinna en sá þykir eitt mesta efnið sem komið hefur frá Afríku um tíma.

Hefur Obinna verið á mála hjá ítalska liðinu Chievo með góðum árangri en var keyptur af Inter Mílanó fyrr í vikunni og strax lánaður til Everton enda gnægð af frábærum framherjum hjá Inter.

Everton hins vegar hefur gengið illa að fá þá leikmenn til sín sem David Moyes, stjóri liðsins, vildi fá og er Obinna því kærkominn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert