Vilja Curbishley út

Óvinsæll hjá aðdáendum West Ham.
Óvinsæll hjá aðdáendum West Ham. Reuters

Aðdáendur West Ham United eru orðnir langþreyttir á þjálfara liðsins, Alan Curbishley, og vilja hann út. Hafði West Ham sigur á Macclesfield í bikarkeppninni í gærkvöldi 4:1 en þurfti til þess uppbótartíma.

Var mikið púað á Curbishley og leikmenn liðsins að þeim leik loknum enda þykir liðið leika afspyrnu dapran bolta auk þess sem úrslitin hafa ekki þótt merkileg. Liðið tapaði stórt 3:0 fyrir Manchester City um helgina og situr í sextánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Sjálfur segir Curbishley að hann hafi áfram fullan stuðning stjórnar liðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert