Hull með tilboð í Campbell

Frazier Campbell er vinsæll í Hull.
Frazier Campbell er vinsæll í Hull. Reuters

Hull City, nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, hafa gert Manchester United tilboð í framherjann efnilega Frazier Campbell. Hann var í láni hjá Hull á síðasta vetri og skoraði þá 15 mörk í 1. deildinni, á þeim sjö mánuðum sem hann dvaldi þar.

Campbell er tvítugur og er þessa stundina í Mónakó þar sem Manchester United etur kappi við Zenit St. Pétursborg frá Rússlandi í leiknum um Stórbikar Evrópu. BBC skýrði frá því síðdegis að formlegt tilboð hefði verið sent Manchester United vegna Campbells.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert