Fyrsti Evrópuleikur Portsmouth

Leikmenn Portsmouth fagna bikarmeistaratitlinum síðastliðið vor.
Leikmenn Portsmouth fagna bikarmeistaratitlinum síðastliðið vor. Reuters

Söguleg stund verður á Fratton Park í kvöld þegar heimamenn í Portsmouth leika sinn fyrsta Evrópuleik í sögu félagsins þegar það tekur á móti portúgalska liðinu Guimaraes í fyrri viðureign liðanna í 1. umferð UEFA-bikarsins.

Portsmouth tryggði sér keppnisréttinn í UEFA-bikarnum með því að verða enskur bikarmeistari á síðustu leiktíð eftir sigur á Cardiff í úrslitaleik.

Hermann Hreiðarsson verður í leikmannahópi Portsmouth en eins og í síðustu leikjum liðsins er reiknað með að hann hefji leik á varamannabekknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert