Berbatov með tvö í Álaborg

Thomas Enevoldsen, til hægri, reynir að stöðva Cristiano Ronaldo í …
Thomas Enevoldsen, til hægri, reynir að stöðva Cristiano Ronaldo í leiknum í kvöld. Reuters

Manchester United vann öruggan sigur á dönsku meisturunum AaB, 3:0, í Álaborg í kvöld en leikurinn var í E-riðli Meistaradeildar Evrópu. Villarreal vann Celtic, 1:0, í sama riðli.

Wayne Rooney skoraði eftir 20 mínútna leik og Dimitar Berbatov bætti við tveimur mörkum í síðari hálfleiknum í Álaborg.

Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is og til að skoða hana, smellið hér.

Það var Marcos Senna sem skoraði sigurmark Villarreal gegn Celtic um miðjan síðari hálfleik.

Manchester United og Villarreal eru með 4 stig í riðlinum en Celtic og AaB 1 stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert