Rooney verður með Englendingum

Wayne Rooney í baráttunni með Manchester United.
Wayne Rooney í baráttunni með Manchester United. Reuters

Wayne Rooney framherji Manchester United verður með Englendingum þegar þeir etja kappi við Kazakhstan og Hvíta-Rússland í undankeppni HM síðar í þessum mánuði.

Rooney meiddist í leik United og Álaborgar í Meistaradeildinni í fyrrakvöld og var að hætta leik í seinni hálfleik. Hann er tæpur fyrir leik sinna manna gegn Blackburn á laugardaginn en ætti að vera búinn að ná sér fyrir landsleikina.

,,Wayne er meiddur á ökkla og það er tæpt að hann geti verið með á laugardaginn en hann ætti að vera búinn að ná sér fyrir leikina með landsliðinu,“ sagði talsmaður Manchester United við fréttavef BBC.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert