Silvestre lék sinn fyrsta leik með Arsenal

Mikael Silvestre leikmaður Arsenal.
Mikael Silvestre leikmaður Arsenal. Arsenal.com

Franski varnarmaðurinn Mikael Silvestre lék sinn fyrsta leik í búningi Arsenal í kvöld en hann lék með varaliði félagsins sem lagði Stoke City, 3:2.

Silvestre gekk í raðir Arsenal frá Manchester United í sumar en hann hefur ekki fengið að spreyta sig með liðinu í úrvalsdeildinni enn sem komið er.

Amaury Bischoff, franskur miðjumaður sem Arsenal fékk frá þýska liðinu Werder Bremen í sumar, lék einnig sinn fyrsta leik fyrir Lundúnaliðið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert