Eggert tryggði Hearts sigur

Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður skoska úrvalsdeildarliðsins Hearts.
Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður skoska úrvalsdeildarliðsins Hearts. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eggert Gunnþór Jónsson tryggði Hearts sætan útisigur á St.Mirren í skosku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Eggert skoraði eina mark leiksins með skalla eftir aukaspyrnu 11 mínútum fyrir leikslok en Eggert og félagar léku manni frá 41. mínútu leiksins.

Hearts er í fjórða sæti deildarinnar með 17 stig en Celtic sem sigraði Motherwell, 2:0, er í toppsætinu með 31 stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert