Farið að hitna undir Hughes

Sparky þykir valtur í sessi hjá Manchester City, eftir slakt …
Sparky þykir valtur í sessi hjá Manchester City, eftir slakt gengi undanfarið. Reuters

Það þykir jafnan tvíeggja sverð fyrir knattspyrnustjóra að fá stuðning frá stjórnarformönnum knattspyrnuklúbba sinna eftir tapleiki, enda þýðir það nánast ávallt ávísun á brottrekstur viðkomandi þjálfara innan skamms tíma. Nú hefur Mark Hughes, stjóri Manchester City, fengið slík stuðningsorð í hattinn frá Khaldoon Al-Muburak, stjórnarformanni félagsins.

Liðið tapaði í gær fyrir Tottenham á heimavelli og hefur því aðeins unnið einn leik af síðustu sjö en leikurinn í gær var þriðji tapleikur liðsins í röð.

„Við erum rólegir og yfirvegaðir og við í stjórn félagsins berum mikla virðingu fyrir Hughes. Þetta er sigurlið sem á í smá basli, en sem betur fer les ég ekki blöðin sem segja að Hughes sé undir pressu, enda finnst mér það ótrúlegt,“ sagði Al-Mubarak.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert