Liverpool í efsta sætið

Steven Gerrard fagnar marki.
Steven Gerrard fagnar marki. Reuters

Liverpool fór í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með því að leggja Boltaon að velli 2:0 á útivell. Grétar Rafn Steinsson lék allan leikinn með Bolton en Heiðar Helguson var á varamannabekknum og kom ekki við sögu.

Dirk Kuyt kom Liverpool yfir á 28. mínútu og Steven Gerrard bætti við öðru marki á 73. mínútu. Bæði Kuyt og Gerrard skoruðu með skalla að þessu sinni. Liverpool var mun sterkari aðilinn og sigurinn sanngjarn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert