Selur Wigan Heskey?

Emil Heskey framherji Wigan og enska landsliðsins.
Emil Heskey framherji Wigan og enska landsliðsins. Reuters

Svo gæti farið að Wigan selji framherjann Emile Heskey þegar leikmannaglugginn opnar í janúar.

Dave Whelan, knattspyrnustjóri félagsins, lætur að því liggja að hugsanlega verði kappinn seldur í janúar, en samningur hans rennur út í lok tímabilsins.

„Samningur hans rennur út í sumar og hann hefur hingað til ekki viljað skrifa undir nýjan samning hjá okkur. Það gæti kostað okkur einhverjar milljónir punda að missa hann í sumar. En við verðum að bíða fram í janúar og sjá til hvað gerist þá,“ segir Whelan.

Sagan segir að nokkur lið gætu hugsað sér að kaupa Heskey og hafa  Liverpool, Aston Villa og Tottenham helst verið nefnd í því sambandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert